Stafræn hæfni - Öryggi
Á þessu praktíska námskeiði Stafræn hæfni, skerpum við á kunnáttu og viðhorfi til daglegra notkunar tæknilausna. Markmiðið er að efla öryggi, gagnrýni og getu til að beita tækni á skilvirkan hátt í daglegu starfi.
Á námskeiðinu er notast við fjórar meginstoðir til að skýra efnið: Öryggi, Framkvæmd, Samskipti og Upplýsingar.
- Öryggi: Efla öryggisvitund - bæði er kemur að netnotkun (sækja og deila efni) svo og á hinum ýmsu tækjum sem notuð eru í dag. Átta sig á að sumir geti vísvitandi eða fyrir slysni stolið, skemmt eða misnotað gögn sem viðkomandi hefur aðgang að.
Minnka líkur á frávikum og eða uppákomum með góðu verklægi og huga að löggjöf því tengdu, réttindum og skyldum. Skilja grunnhögun kerfa, bera kennsl á og forðast netveiðar og svik á netinu. - Framkvæmd: Getan til að búa til, setja upp og vinna með stafrænt efni, auk þess að leysa tæknileg vandamál og finna nýjar leiðir til að nýta kosti tækninnar sem best. Jafnframt skiptir máli að upplýsa og fræða um hvað örugg samskipti fela í sér, hvernig bregðast eigi við vá eða grun um slíkt, að boðleiðir séu skýrar og þekktar og að tæki séu rétt stillt og uppfærð – þannig verður vinnan bæði örugg og skilvirk.
- Samskipti: Hæfileikinn til að eiga í samskiptum og vinna í samstarfi með hópum fólks á netinu, og geta valið viðeigandi samskiptamáta, réttan tón og góða framkomu eftir aðstæðum. Jafnframt felst þetta í skilningi á netnotkun, grunnvirkni og uppbyggingu kerfa, að geta metið ólíkar leiðir til samskipta, styrkt samvinnu innan teyma og tryggt ábyrga gagnadeilingu sem byggir á þekktum og skilgreindum ferlum.
- Upplýsingar: Hæfileikinn til að meta og nýta áreiðanlegar upplýsingar á markvissan hátt. Að geta fundið og greint á milli staðreynda og skoðana, ásamt því að skrá, flokka og varðveita gögn með skipulegum hætti. Einnig felur þetta í sér getu til að skilgreina þarfir, finna, sækja, geyma, skipuleggja og greina stafrænar upplýsingar, og að leggja mat á gildi þeirra, gæði og tilgang í mismunandi aðstæðum.
Fyrir hvern
Námskeiðið er fyrir alla - einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög sem vilja efla stafræna hæfni, öruggar og árangursríkar starfsvenjur á skömmum tíma.
Námskeiðið er í formi fyrirlestrar með raunverulegum dæmum og eflir upplýsingalæsi. Því er ætlað að draga úr líkum á netveiðum (e. phishing), hvað sé átt við með samskiptasvikum (e. social engineering), þekkja helstu óværur (e. malware) – Efla öryggisvitund einstaklingsins ásamt því að skýra hvernig gagnrýni geti minnkað líkur á yfirtöku, svikum og öðru. Námskeiðið er á mannamáli og forðast er að nota flókin tæknileg orðasamband.
Niðurstaðan er öruggara og skilvirkara daglegt starf þar sem öryggi er samþætt upplýsingalæsi, samvinnu og framkvæmd.
Hér má finna samantekt um "Stafræna hæfni" á íslensku og ensku.
Sérsniðið
Viltu setja upp sérsniðið námskeið fyrir þitt teymi eða bæta við sérstökum efnisþáttum til að mynda SharePoint, Teams eða gagnavernd? Hafðu samband og við sniðum námskeiðið að ykkar daglega rekstri.
Leiðbeinandi
Atli Þór Kristbergsson iðnmeistari og verkefnastjóri.
Tilboð
- Fáðu tilboð í Stafræn hæfni - Öryggi
- Tilboð út frá námskeiði en ekki fjölda nemenda - þó er hámarksfjöldi
- Enginn lámarksfjöldi, en hámark 20 manns á hverju námskeiði
- Hagkvæmt ef senda þarf marga á námskeið
- Verð miðast við einn hóp
- Góður afsláttur ef þrjú námskeið eða fleiri eru bókuð í einu
- Hjá viðskiptavini eða í fjarkennslu
Hagnýt ráð
- Mörg stéttarfélög veita einstaklingum allt að 90% styrk af verði námskeiðs
- Vinnustaðir geta sótt um styrki í gegnum starfsmenntasjóði inn á Áttin
- Vinnumálastofnun veitir möguleika allt að 75% styrk af verði námskeiðs
Átt þú rétt á styrk..?
