Verkefna- og tímastjórnun
Microsoft Excel hefur lengi verið eitt af öflugusta verkfærið innan M365. Margir tengja Excel fyrst og fremst við tölur, formúlur og gagnavinnslu, en styrkur þess liggur víðar. Það sem gerir Excel einstakt er hvernig það sameinar sveigjanleika, nákvæmni og möguleikann á að móta verkferla eftir raunverulegri þörf. Þessi samsetning gerir Excel að verkfæri sem getur stutt við ákvarðanatöku, skipulag og eftirlit á ótal sviðum.
Styrkur kerfisins
Styrkur Excel felst fyrst og fremst í því hversu auðvelt er að aðlaga það að ólíkum verkefnum. Sem slíkt getur það verið bæi einfalt eða flókið og reyndar allt þar á milli. Hægt er að vinna með fastar eða breytilegar upplýsingar og hægt að byggja lausnir sem þjóna nákvæmlega þörfum hvers og eins. Þetta hefur gert Excel að lykilverkfæri í fjármálum, greiningum og áætlanagerð, en einnig í skipulagi daglegs rekstrar.
Einmitt það að geta mótað Excel að eigin verklagi gerir það svo sterkt fyrir verkefna- og tímastjórnun. Þó að margir noti ýmis forrit eins og Planner, Asana eða Trello, þá finnst mörgum vanta sveigjanleikann. Vissulega er hægt að stjórna verkefnum ágætlega, en erfitt er stundum að sía gögn á nýjan hátt eða sjá myndina út frá ólíkum sjónarhornum. Þar skín Excel.
Ein einföld en áhrifarík leið til að nýta Excel í verkefnastjórnun er að útbúa verkefnayfirlit (e. task tracker). Í því má halda utan um stöðu, ábyrgð, dagsetningar og framvindu. Einnig má virkja gagnaviðmið (e. data validation) og þannig útbúa valmyndarsvæði, stöður eins og "Í vinnslu", "Lokið" eða "Í bið". Nota má skilyrta snið (e. conditional formatting) og láta Excel lita verkþætti ef þeir eru komnir fram yfir dagsetningu. Þetta eykur bæði yfirsýn, aga og skýran verkferil.
Aðrir taka þetta skrefinu lengra og nota Excel sem einfalt tímahjálparverkfæri. Með því að skrá tíma framkvæmdra verkefna, nota formúlur til að leggja saman tíma eftir vikum, mánuðum eða verkefnum. Svo má nota PivotTable til að greina tímann, geta einstaklingar og teymi fundið álagstoppa, skýrari fórgangsröðun og betri jafnvægi milli verkefna. Þetta á sérstaklega við hjá þeim sem vinna sjálfstætt, í þjónustu, eða reka lítil teymi sem vilja fylgjast með kostnaði, álagsdreifingu eða framvindu gagnvart markmiðum.
Sveigjanlegt stjórntæki
Excel er ekki bara töflureiknir - það er sveigjanlegt stjórntæki sem hjálpar til við að halda utan um upplýsingar á þann hátt sem passa hverju sinni. Hvort sem þú ert að skipuleggja verkefni í teymi, gera eigin tímastjórnun markvissari eða leita leiða til að fá betri yfirsýn yfir framvindu, þá býður Excel upp á ótrúleg tækifæri sem margir hafa ekki nýtt til fulls.
Með litlum breytingum og örfáum einföldum tækjum, eins og skilyrtu sniði, formúlum og gagnaviðmiðum, getur Excel breyst í öflugt verkefna- og tímaeftirlitskerfi. Þannig þjónar það stundum betur en margt af því sem er til í sérhæfðum hugbúnaði. Styrkur Excel liggur nefnilega ekki bara í útreikningum - heldur í því hversu vel það aðlagast hverjum og einum.
