Excel – Tíma og verkefnastjórnun (V2603)

22.500 kr.

Excel – Verkefna og tímastjórnun

Haldið þriðjudaginn 3 mars 2026 frá 09:00 til 12:00
Stórhöfði 27, 110 Reykjavík – 3 hæð

Félagsmenn RAFMENNT eru beðnir að skrá sig á vef þess – Sjá hér

Excel námskeið
Önnur Excel námskeið sem eru í boði

Nánari lýsing hér að neðan

Laust: 10 sæti

Vörunr. Excel-grunnur-V2603 Vöruflokkur: Tag: Brand:

Excel – Verkefna og tímastjórnun

„Excel – Verkefna og tímastjórnun“ er einfalt framhald af námskeiðinu „Excel – Grunnstig“ en hér er fókusinn á dagsetningar, tíma og létta útreikninga til að skipuleggja verkefni og fylgja þeim eftir. Nemendur byggja upp verkefnalista, einfaldan gátlista, köku og súlurit og setja saman Gantt-tímalínu. Áhersla er verkefni og útbúa endurnýjanleg sniðmát sem nýta má aftur og aftur.
Notast er við nýjustu útgáfu af Excel og því mögulegt að eitthvað af því efni sem farið er yfir sé ekki að finna í eldri útgáfum af Excel.

Ávinningur

Fyrir einstaklinga, einyrkja og annað starfsfólk sem vill halda utan um verkefni, verkþætti, skil, einfalda áætlun og stöðuskýrslur.

Undanfari

Mikilvægt er að nemendur hafi farið á „Excel – Grunnstig“ áður – gert er ráð fyrir að nemendur kunni allt það efni og séu vanir að nota það.

Yfirferð

  • Gerð verkefnalista
  • Notkun gátreita (e. checkbox)
  • Notkun á IF falli – hvar og hvernig
  • Notkun falla „Today“, „Now“, „Networkdays“… og fl.
  • Notkun á skilyrtu sniði (e. conditional formating)
  • „Listi vs. Tafla“ og fellilistar (e. drop-down)
    • Úthlutað / Í vinnslu / Lokið
  • Gerð súlu- og kökurita er henta námskeiðinu
    • Lokið vs. Í vinnslu
  • Útbúa einfalt Gantt-rit

Lítið sem ekkert er af glærum heldur munu nemendur vinna verkefni á námskeiðinu.
Ef nemendur hafa fartölvu með uppsettu Excel M365 er í lagi að hafa hana á námskeiðinu.