Excel – Grunnstig (V2601)

22.500 kr.

Excel grunnur – Allt til að koma sér af stað

Haldið þriðjudaginn 24 febrúar 2026 frá 09:00 til 12:00
Stórhöfði 27, 110 Reykjavík – 3 hæð

Félagsmenn RAFMENNT eru beðnir að skrá sig á vef þess – Sjá hér

Excel námskeið
Önnur Excel námskeið sem eru í boði

Nánari lýsing hér að neðan

Laust: 8 sæti

Vörunr. Excel-grunnur-V2601 Vöruflokkur: Tag: Brand:

Excel – Grunnstig

Excel grunnur – Hér er farið yfir allt það helsta. Allt frá nýrri vinnubók, uppbyggingu á Excel, notkun valmynda, heiti, innsetning, aðgerðir og margt fleira. Um er að ræða námskeið á grunnstigi og ekki gert ráð fyrir að notandinn hafi neina reynslu af kerfinu.

Unnið er með innsetningu á efni, röðun, síun, einfalda útreikninga og vista á vinnustöð, í OneDrive eða á SharePoint.

Notast er við nýjustu útgáfu af Excel og því mögulegt að eitthvað af því efni sem farið er yfir sé ekki að finna í eldri útgáfum af Excel.

Ávinningur

Að kynnast Excel, uppbyggingu þess og þekkja helstu aðgerðir. Framkvæma einfalda útreikninga, framsetningu og fleira.

Yfirferð

  • Uppbygging á Excel
  • Vinnubók, skjöl, dálkar, línur og reitir
  • Viðmót – Valmyndir og fl.
  • Innsláttur gagna – Texti, dagsetningar og fl.
    • Format og fl.
  • Léttir útreikningar
  • Notkun innbyggðra falla
  • Notkun á síum og röðun
  • Litir – Bakgrunnur og texti
  • Flýtileiðir (e. shortcut)Vistun – staðbundin eða í M365

Lítið sem ekkert er af glærum heldur munu nemendur vinna verkefni á námskeiðinu.